Betri rakstur

Margir karlmenn raka sig oft í viku, jafnvel daglega. Þó hefur það vafist fyrir mörgum hvernig eigi að raka sig án þess að því fylgi óþægindi með eða á eftir. Hér má finna upplýsingar um hvernig þú getur rakað þig á réttan hátt. Ef þú hefur einhverjar frekari spurningar um raksturinn spurðu þá rakarann þinn.

Rakvélar eru margskonar og geta verið með allt frá einu upp í fimm blöð. Það er þó okkar mat að það sé óþarfi að vera með fleiri en eitt blað. Rakstur með rakhníf hjá rakara er oft talinn besti rakstur sem hægt er að fá og því ætti ekki að þurfa fleiri blöð heima. Rakvélar með einu blaði eru oftast kallaðar gamaldags rakvélar/sköfur en heita á ensku safety razor. Með því að nota slíka sköfu er minna áreiti á húðina en það þarf þó að fara varlega því það getur verið auðveldara að skera sig ef farið er óvarlega. Okkar reynsla er þó sú að ekki þurfi mikla þjálfun til að ná góðum tökum á þessum rakvélum. Hér getur þú skoðað flestar rakvélar sem við erum með.

Rakburstar eru til í mörgum tegundum og skipta hárin mestu máli þegar burstinn er valinn. Svínshár eru ódýrustu hárin og þau hár sem við mælum síst með. Greifingjahár eru þau hár sem best henta í rakbursta enda hafa þau verið með vinsælustu hárunum frá því rakburstinn kom til sögunnar. Þau hár eru til í nokkrum gerðum. Gerviefni eru þó að sækja á og nú eru komnir burstar á markað sem standast fyllilega samanburð við greifingjahár en á töluvert lægra verði. Hér má lesa meira um burstana og mismunandi kosti hverrar hárgerðar og skoða okkar úrval.

Hreinsið burstann og rakvélina eftir hverja notkun. Það er einfaldast að gera með kröftugri vatnsbunu. Hristið vatn úr burstanum, ekki vinda hann. Best er að geyma burstann með hárin hangandi niður því það kemur í veg fyrir að raki safnist í botninn á honum. Forðist að geyma burstann í lokuðum skáp til að koma í veg fyrir myglu. Skiptið um rakvélarblað um leið og raksturinn fer að verða lélegur eða óþægilegur.

Raksápan

Notið raksápu sem inniheldur glýserín, eða sápu sem freyðir með vatni. Forðist froðu og gel eða efni sem innihalda deyfandi efni svo sem benzocaine eða mentól. Þessi efni loka húðinni og gera skeggið stífara. Notið hóflegt magn af raksápu því of mikið magn gerir raksturinn hvorki auðveldari né betri. Góðar raksápur freyða með vel útilátnum skammti af vatni. Þótt sumar raksápur og rakkrem megi bera á með fingrunum jafnast ekkert á við að nota góðan rakbursta. Burstinn mýkir og opnar húðina enn betur og ýfir skegghárin þannig að raksturinn verður enn auðveldari.

Undirbúningur

Lykillinn að góðum rakstri er að undirbúa húðina áður en þú berð á þig raksápu. Best er að raka sig í heitri sturtu eða eftir hana, eða að setja vel heitt og rakt handklæði á andlitið í um það bil 2 mínútur fyrir raksturinn. Þetta mýkir skeggið, örvar og opnar húðina þannig að raksturinn verður auðveldari og þægilegri. Skegghár sem ekki hefur verið mýkt með hita er mjög hart og þar af leiðandi slítur það rakvélarblöðum hratt. Skegghárið er harðara en eggin á rakvélarblaðinu og þegar undirbúningi er sleppt, verður rakvélarblaðið fljótlega skörðótt og bitlaust. Bitlaust blað er ein meginástæðan fyrir óþægilegum rakstri og skurðum.

Vinnið upp góða froðu með rakburstanum. Það má gera með því að bleyta harða sápu og nudda burstanum upp úr henni en einnig eru til sápur sem hægt er að sprauta í burstann og vinna upp froðuna á andlitinu sjálfu. Gott er að athuga hvort hausinn á rakvélinni sé hæfilega fastur á skaftinu en varast að skrúfa of fast svo erfitt verði að losa hausinn aftur til að skola vélina og skipta um blað.

Raksturinn

Rakið alltaf í sömu stefnu og skeggið vex, aldrei á móti. Að raka á móti skeggvextinum er algengasta orsök fyrir sviða og inngrónum hárum í andliti. Rakstur þvert á skeggvöxtinn er í lagi. Sumir karlmenn þola það að raka sig á móti skeggvextinum, en þá eingöngu eftir að hafa rakað sig fyrst í sömu átt og skeggið vex. Hallið sköfunni í u.þ.b. 30° horn. Rennið sköfunni létt yfir hörundið og hafið eins strekkt á húðinni og mögulegt er. Ekki hafa áhyggjur af smáskurðum, eftir smá æfingu koma þeir sjaldan fyrir.

Hreinsið rakvélarblaðið oft og vel meðan á rakstrinum stendur, þannig að ekki safnist hár á milli blaðanna því þá hætta þau að virka. Ef sápan þornar meðan á rakstrinum stendur, notið þá meira vatn og vinnið upp froðuna með burstanum án þess að bæta við sápu.

Þeir sem hafa náð góðri færni geta íhugað að losa hausinn örlítið (sirka hálfan hring) þegar þeir vinna á svæðum sem erfitt er að ná til. Við þetta verður blaðið berara sem getur gert mönnum auðveldara fyrir að ná til erfiðari svæða. Hins vegar aukast líkur á skurðum talsvert og því ber ávallt að fara varlega í slíkt. Herðið hausinn aftur áður en önnur svæði eru rökuð.

Eftir rakstur

Hver kannast ekki við að klára raksturinn með því að skella á sig vænum skammti af rakspíra, standa síðan á öndinni og hafa það á tilfinningunni að maður hafi skvett bensíni á andlitið og kveikt svo í. Það sem gert er eftir raksturinn er ekki síður mikilvægt en undirbúningurinn. Strax að loknum rakstri skal setja kalt vatn á andlitið og loka þannig húðinni aftur eftir raksturinn. Þá fyrst skal bera á sig rakspíra eða krem (balm) til sótthreinsunar og mýkingar.

VIÐ NOTUM EINGÖNGU GÆÐA VÖRUR

Í verslun okkar færðu allt sem þú þarft til að gera raksturinn enn betri. Við erum með mikið úrval af sköfum, rakhnífum, burstum og sápum. Þú færð svo hjálp frá okkur að finna réttu vörurnar fyrir þig til að nota eftir raksturinn.

Leit