Better be Bold

Better be Bold var stofnað af honum Dennis eftir að hann tók skrefið og rakaði af sér allt hárið. Það tók Dennis fjögur ár að sættast við að hárið væri að farið að þynnast en hann neitaði að vera einn af þeim sem reyna að greiða yfir skallann og hann sér ekki eftir því í dag!

En hann tók fljótt eftir því að skallanum þarf að sinna rétt eins og hári, vilji fólk hafa hann fallegan og heilbrigðan. Höfuðleðrið er eitt viðkvæmasta húðsvæði líkamans og þegar vörnin sem hárið veitir er farin er enn frekari þörf á því að nostra við þetta svæði. Skallinn vill gjarnan þorna eða glansa og hársvörðurinn er sérstaklega viðkvæmur fyrir sól og rakstri.

Með réttri umhirðu verður húðin ekki bara fallegri heldur líka heilbrigðari og þér líður betur á allan hátt! Dennis fann engar vörur sem hentuðu og bjó þær því til sjálfur. Fyrsta kremið var nærandi krem sem kemur í veg fyrir að skallinn glansi og fékk nafnið Bald Cream.

Leit