Raksett - STYLO - Spalted beech - Silvertip greifingja

STYLO settin eru stílhrein og falleg og prýða hvaða baðherbergi sem er.

Handföngin eru úr hömruðum "spalted" beykivið sem vísar til þess hvernig beykiviðurinn er unninn en með þessari aðferð verða æðarnar í honum meira áberandi og fallegri. Eins og gefur að skilja er hvert sett einstakt þar sem æðarnar eru ólíkar hver annarri.

Silvertip badger hárin eru fínustu hárin af greifingjum, sérvalin í hárknippin sem eru handunnin. Þetta dýrmæta náttúrulega efni er einkar mjúkt og sveigjanlegt.

Sjá alla bursta með Silvertip badger hárum.

Hér má sjá öll STYLO raksettin en þau fást einnig í svörtu og úr Thuja við.


Leit