Raksett - Traditional - Chrome - Silvertip fiber hár - R41

  • Traditional lína Mühle er gullfalleg og löngu orðin klassísk. Fallegt munstrið í króminu gerir það einnig að verkum að rakvélin og burstinn fara ákaflega vel í hendi.

    Þetta sett inniheldur rakvél með opnum haus og rakbursta með Silvertip fiber hárum, auk statífs.

    Rakvélin:
    R41 er með opinn kamb sem við mælum frekar með fyrir þá sem hafa reynslu af rakstri. Kosturinn við opna kambinn er að broddar og sápa loðir síður við blaðið og auðveldara er að hreinsa vélina eftir rakstur. Hentar einna helst þeim sem eru með þykkan og sterkan skeggvöxt.

    Hárin:
    Hárin eru fínustu Silvertip Fiber hár, þróuð af Mühle, og flestir eru sammála um að séu ekki síðri fínustu greifingjahárunum. Hárin eru einstaklega mjúk í endann en með mikinn styrkleika fyrir miðju háranna. Það skilar sér í mjúkri tilfinningu við húð þegar froðan er borin á, án þess að missa niður stífleikann sem gott er að hafa þegar verið er að vinna upp froðuna.

    Kostur Silvertip Fiber háranna er ekki síst í því að þau þorna fyrr en greifingjahár og eru því ekki jafn viðkvæm.

Leit